Spjallbekkur

Nýlega var haldin fræðsla á Sóltún Sólvangi um einsemd íbúa sem búa á hjúkrunarheimilum. Þar var farið yfir hvað veldur einsemd, hvernig áhrif hún hefur á fólk og hvað sé hægt að gera til að draga úr einmanaleika.

Í framhaldinu hefur nú verið tekinn í notkun spjallbekkur á Sólvangi sem er merktur þannig að sá sem sest í hann er opinn fyrir spjalli. Spjallbekkir skapa þannig vinalegt rými fyrir ókunnuga að tengjast.

Fjóla forstöðumaður á heiðurinn af útsaumsmyndinni sem er við sófann❤️